Feðgarnir sættast eftir mikil átök

Tommy Lee og sonur hans Brandon Lee rifust opinberlega í …
Tommy Lee og sonur hans Brandon Lee rifust opinberlega í byrjun árs. Samsett mynd

Rokkarinn Tommy Lee var fluttur á spítala í mars eftir slagsmál við Brandon Lee, son sinn sem hann á með Pamelu Anderson. Feðgarnir voru duglegir að tjá sig um atvikið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum í kjölfarið. Nú virðist sem feðgarnir hafi slíðrað sverðin í anda jólanna. 

Tommy Lee birti mynd af sér og syni sínum í faðmlögum og er tónninn allt annar en í mars þegar hann íhugaði að kæra son sinn. „Ég elska þig sonur,“ skrifaði Lee við mynd af þeim á Instagram í vikunni. 

Fyrr á árinu sagði Tommy Lee son sinn hafi ráðist á sig. Brandon Lee seg­ði hins veg­ar að faðir sinn glímdi við alkó­hól­isma. Móðir Brandons, Pamela And­er­son, tók í sama streng og varði son sinn.

„Ég er viss um að heim­ur­inn sjái sann­leik­ann. Ég stend við hlið son­ar míns sem brást við í sjálfs­vörn og var hrædd­ur um líf sitt,“ sagði Anderson í pistli eftir atvikið. 

View this post on Instagram

I love you son @brandonThomasLee

A post shared by ☨☯ɱɱ¥ ᒪ☰☰ (@tommylee) on Dec 12, 2018 at 11:12pm PST

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson