Segir meint framhjáhald lygi

Dax Shepard og Kristen Bell byrjuðu saman árið 2007.
Dax Shepard og Kristen Bell byrjuðu saman árið 2007. mbl.is/AFP

Leikarinn Dax Shepard þvertekur fyrir að hafa haldið fram hjá núverandi eiginkonu sinni, leikkonunni Kristen Bell, árið 2009 með fyrirsætunni Kayti Edwards. Edwards sem er stjúpbarnabarn leikkonunnar Julie Andrews hafði áður átt í ástarsambandi við Shepard. 

Í viðtali við Daily Mail segist Edwards vilja segja sannleikann eftir að hún birti í gríni myndir af þeim á Facebook þar sem þau sáust kyssast í partýi. Edwards heldur því fram að myndirnar hafi verið teknar árið 2009 þegar Shepard hafði verið með Bell í tvö ár. Segist hún ekki hafa áttað sig á að hann ætti kærustu fyrr en eftir atvikið.

„Við fórum og elskuðumst, við höfðum samfarir tvisvar og hann fór ekki fyrr en morguninn eftir,“ segir Edwards sem er barnabarn Blake Edwards sem var kvæntur Julie Andrews frá 1969 en hann lést árið 2010. 

Shepard heldur því hins vegar fram að myndirnar séu 13 ára gamlar en ekki níu ára gamlar. Segir hann þetta ekki í fyrsta skipti sem Edwards selji slúðurmiðlum sögur af frægum mönnum.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson