Ungfrú heimur kemur frá Filippseyjum

Ungfrú Filippseyjar var valin ungfrú heimur (Miss Universe) í Bangkok í nótt en keppnin markaði ákveðin tímamót þar sem í fyrsta skipti keppti transkona í keppninni. 

Catriona Gray, 24 ára, hafnaði í fyrsta sæti en fulltrúi Suður-Afríku var í öðru sæti og Venesúela í því þriðja. Bandaríski grínistinn Steve Harvey og fyrirsætan Ashley Graham voru kynnar á keppninni. 

Catriona Gray krýnd ungfrú heimur af Demi-Leigh Nel-Peters sem var …
Catriona Gray krýnd ungfrú heimur af Demi-Leigh Nel-Peters sem var kjörin í fyrra. AFP

Gray var ákaft fagnað þegar hún lýsti störfum sínum í fátæktarhverfum höfuðborg Filippseyja, Manila, og ummælum hennar um að hún myndi reyna gera sitt til þess að styðja þá sem þyrftu á hjálp að halda færi hún með sigur af hólmi var vel tekið. Hún myndi vilja starfa þar sem neikvæðni fengi ekki dafnað og börn væru með bros á vör.

Í keppninni þurftu keppendur að svara ýmsum spurningum svo sem varðandi fjölmiðlafrelsi, lögleiðingu kannabis, flóttafólk og #MeToo.

Katrín Lea Elenu­dótt­ir var fulltrúi Íslands í keppninni.
Katrín Lea Elenu­dótt­ir var fulltrúi Íslands í keppninni. AFP

Ungfrú Spánn, Angela Ponce, er fyrsta transkonan sem tekur þátt í keppninni en Miss Universe-keppnin var eitt sinn í eigu forseta Bandaríkjanna, Donald Trump. Eitt af því sem hann kom í gegn eftir að hann varð forseti var að banna transfólki að ganga í bandaríska herinn.

„Ég hef alltaf sagt að það að vera með sköp breytti mér ekki í konu. Ég er kona, var það áður en ég fæddist því sjálfsvitund mín er hér,“ sagði Ponce í viðtali við AFP-fréttastofuna á laugardag og benti á höfuð sitt.

Katrín Lea Elenu­dótt­ir var fulltrúi Íslands í keppninni.

Sthefany Gutierrez frá Venesúela, Tamaryn Green frá Suður-Afríku og Catriona …
Sthefany Gutierrez frá Venesúela, Tamaryn Green frá Suður-Afríku og Catriona Gray frá Filippseyjum. AFP
Catriona Gray er ungfrú heimur.
Catriona Gray er ungfrú heimur. AFP
Katrín Lea Elenu­dótt­ir.
Katrín Lea Elenu­dótt­ir. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson