Hafði aldrei horft á tennisleik

Shia LeBeouf og Sverrir Guðnason í hlutverkum McEnroe og Borg …
Shia LeBeouf og Sverrir Guðnason í hlutverkum McEnroe og Borg í Borg McEnroe.

Sverrir Guðnason virkar mjög afslappaður þar sem hann situr andspænis fjórum blaðamönnum í Sevilla, degi fyrir afhendingu Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna á laugardegi, 15. desember, klæddur víðum bómullarfötum og síðum bómullarfrakka. Sverrir var tilnefndur til verðlaunanna sem besti leikarinn, fyrir túlkun sína á tennisstjörnunni Birni Borg í kvikmyndinni Borg McEnroe en bandaríski leikarinn Shia LeBeouf leikur John McEnroe í myndinni. Sverrir hlaut ekki verðlaunin en var auðvitað hæstánægður með tilnefninguna.

Leikur tennis af og til

Sverrir þurfti að læra og æfa tennis í marga mánuði fyrir myndina og koma sér í nógu gott form til að virka sannfærandi í hlutverki Borg. Hann er spurður að því hvort hann leiki enn tennis og segist hann ekki gera mikið af því en þó leiki hann af og til. „Ég fór að gera svo margt annað eftir að ég lék í þessari mynd, í næstu kvikmynd lék ég trompetleikara og þurfti þá að læra að spila á trompet. Ég hafði því lítinn tíma fyrir tennis,“ segir hann. „Spilarðu enn á trompet?“ spyr tékknesk blaðakona. „Nei, í rauninni ekki,“ svarar Sverrir og er í kjölfarið spurður að því hvort hann hafi hitt Björn Borg fyrir tökur myndarinnar og segist hann ekki hafa gert það. Hins vegar hafi hann hitt Borg eftir að tökum lauk og þá á frumsýningu kvikmyndarinnar.

McEnroe og Borg fyrir einvígið sögufræga.
McEnroe og Borg fyrir einvígið sögufræga.

Nærri því að brotna niður

Í Borg McEnroe segir af sögufrægu einvígi tennisleikaranna árið 1980 og segir Sverrir að Borg hafi ekki verið vel á sig kominn andlega fyrir þann leik. „Hann var nálægt andlegu niðurbroti og ég vildi skapa mína eigin persónu í stað þess að spyrja Borg hvernig honum hefði liðið við ákveðnar kringumstæður og uppfylla væntingar hans. En ég hitti hann á frumsýningunni, hann var mjög ánægður með myndina og afar almennilegur.“

Frægðin kemur í skömmtum

Sverrir fer með stórt hlutverk í The Girl in the Spider'Web sem frumsýnd var í síðasta mánuði og er byggð á fyrstu framhaldsbók Millennium-þríleiks Stiegs heitins Larsson um tölvusnillinginn og hörkutólið Lisbeth Salander, bók David Lagercrantz. Enska leikkonan Claire Foy fer með hlutverk Salander og er kvikmyndin önnur í röðinni af Hollywood-myndum um hetjuna.

Sverrir í hlutverki blaðamannsins Mikaels Blomkvist í The Girl in …
Sverrir í hlutverki blaðamannsins Mikaels Blomkvist í The Girl in the Spider's Web.

Það má því segja að Sverrir sé kominn með annan fótinn inn í Hollywood og orðinn þekktur utan Svíþjóðar, landsins sem hann hefur búið í og starfað meirihluta ævi sinnar. Sverrir er spurður að því hvort hann sé farinn að finna fyrir frægðinni og segir hann frægðina hafa komið í smáum skömmtum á undanförnum árum. „Ég finn fyrir því í Stokkhólmi að fólk kannast við mig en líkt og í Reykjavík er enginn að stökkva á mann þar,“ segir hann kíminn. Það sé hins vegar erfiðara fyrir stórstjörnur að ganga óáreittar um götur Bandaríkjanna.

Ofanritaður spyr Sverri hvort freisti hans að leika meira í útlöndum og segist hann nú þegar gera heilmikið af því að leika utan Svíþjóðar. „Ég er kominn með bandarískan umboðsmann þannig að við sjáum hvað setur en ég vil hafa þetta fjölbreytt, taka að mér ólík og áhugaverð verkefni.“

Hafði aldrei séð tennisleik

Blaðamenn snúa sér aftur að kvikmyndinni sem Sverrir var tilnefndur fyrir og er tilefni viðtalsins og hann er spurður að því hvort hann hafi horft mikið á tennis áður en hann tók hlutverkið að sér. „Nei, ég hafði aldrei horft á tennisleik eða verið á tennisvelli,“ svarar Sverrir brosandi, viðstöddum til allnokkurrar furðu. En fékk hann tennisolnboga? „Nei, en ég æfði svo stíft að ég fór að ganga eins og gamall karl. Þegar maður kemst yfir ákveðinn þröskuld í líkamsþjálfun getur maður lagt miklu meira á sig og æft eins mikið og maður vill. Ég held að ég hafi spilað tennis með þjálfara í tvær klukkustundir á dag í sex til átta mánuði og ég lyfti líka lóðum. Ég var farinn að æfa eins og afreksíþróttamaður,“ svarar Sverrir og segist auk þess hafa þurft að líkja eftir leikstíl Borg. Fyrir vikið geti hann ekki vanið sig af því að líkja eftir óvenjulegri bakhönd þjóðhetjunnar sænsku, bakhönd sem Sverrir líkir við hokkísveiflu.

Vantar gulrót

Hin langa og stranga líkamsþjálfun varð auðvitað til þess að Sverrir komst í fantaform og segist hann nú þurfa að finna sér nýja gulrót til að koma sér aftur í slíkt form. Hann kímir þegar hann segir frá þessu og er svo stóískur að ofanritaður á erfitt með að sjá hann fyrir sér hlaupandi eins og kanínu á tennisvelli. En það gerir hann samt sem áður í Borg McEnroe og með einkar sannfærandi hætti.

Sverrir bætir við að þeir LaBeouf hafi átt í samkeppni á tökustað og þá ekki aðeins í tökum heldur einnig utan þeirra. „Ef ég sá hann hlaupa daglega á hlaupabretti ákvað ég að gera það líka og hlaupa meira en hann,“ segir Sverrir og glottir.

Hann er spurður út í verðlaunin (sem afhent voru á laugardaginn var), hvort hann telji þau mikilvæg. „Já, það er engin spurning,“ svarar hann, „þetta eru kvikmyndaverðlaun Evrópu. Hvað búa margir í Evrópu? 700 milljónir? Það hlýtur að vera býsna gott að vera einn af þeim sex sem hljóta tilnefningu og ég er hæstánægður með það.“

Leikur föður Mortensen

Talið berst að því sem Sverrir er að gera þessa dagana og segist hann hafa verið við tökur á sænskum sjónvarpsþáttum sem heita Älska mig undanfarinn einn og hálfan mánuð. „Ég er dálítið lasinn, hef verið í útitökum í ísköldu veðri,“ segir Sverrir og brosir.

Og um hvað skyldu þessir þættir vera, Elskaðu mig? „Þetta eru dramaþættir um ástarsambönd með örlitlu gamanívafi,“ svarar Sverrir og er þvínæst spurður út í næstu verkefni. „Það er búið að tilkynna að ég leiki í kvikmynd Viggo Mortensen, fyrstu kvikmyndinni sem hann leikstýrir og hann skrifar líka handritið og mun leika í henni með mér og Lars Henriksen. Tökur hefjast á næsta ári,“ segir Sverrir. Kvikmyndin heitir Falling og fjallar um dramatískt samband feðga, að sögn Sverris. Hann leikur föður Mortensen í myndinni og er því flakkað milli ólíkra tímabila í henni, Sverrir í fortíðinni, sumsé.

Í leit að rétta verkefninu

Íslenski blaðamaðurinn stenst ekki mátið að spyrja Sverri hvers vegna hann hafi ekki enn leikið í íslenskri kvikmynd. „Ég hef reyndar átt í viðræðum um það við Íslendinga í tíu ár en hef ekki enn geta komið því að sökum anna. Mig langar virkilega til að leika í íslenskri kvikmynd,“ segir hann. Finna þurfi rétta verkefnið sem henti honum upp á tímasetningu að gera.

Sverrir segir að honum hafi vissulega verið boðin hlutverk í íslenskum kvikmyndum og einnig í leikhúsi. „Ég hóf ferilinn í Borgarleikhúsinu, fór með fyrstu setninguna í fyrsta leikritinu sem var sýnt þar,“ segir Sverrir og að hann hafi þá ákveðið að leggja leiklistina fyrir sig.

Með íslenskt vegabréf

Íslandsumræðan sem nú er hafin í litlu viðtalsherbergi á hóteli í Sevilla, verður til þess að tékknesk blaðakona spyr Sverri að því hvort hann líti á sig sem Íslending eða Svía. „Ég er með íslenskt vegabréf, ég er ekki sænskur ríkisborgari en hef búið í Svíþjóð mjög lengi,“ svarar Sverrir. Það svar er látið duga en líkt og með myndlistarmanninn Ólaf Elíasson vilja fleiri en ein þjóð eigna sér leikarann.

Sverrir segir að lokum að honum hafi ekki dottið í hug að hann gæti leikið Borg og að hann hafi hafnað hlutverkinu nokkrum sinnum áður en hann lét tilleiðast. Hann hafði enga trú á því að hann gæti komið sér í álíka form og tenniskappinn sænski var í árið 1980. En Sverrir mætti þeirri áskorun og stóðst með glæsibrag, um það vitna verðlaunatilnefningar og umsagnir, enda fyrrverandi glímukappi. Já, spurning erlends blaðamanns leiðir í ljós að Sverrir æfði íslenska glímu með KR þegar hann barn og varð Reykjavíkurmeistari í þrígang. Honum ættu því að vera allir vegir færir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson