Forbes hefur birt lista yfir ríkustu stjörnurnar í Bandaríkjunum. Hin 21 árs gamla Kylie Jenner er á meðal fimm efstu á listanum. Á topp tíu lista Forbes eru aðeins tvær konur, Jenner og fjölmiðladrottningin Oprah Winfrey.
Jenner öðlaðist frægð fyrir raunveruleikaþátt fjölskyldu sinnar, Keeping Up With The Kardashians en hefur grætt mikið á snyrtivörumerki sínu Kylie Cosmetics og velgengni á samfélagsmiðlum. Jenner á snyrtivörumerkið ein og er fé hennar metið á 900 milljónir Bandaríkjadala. Reyndar deilir Jenner fimmta sætinu með rapparanum Jay-Z en hann er einnig sagður eiga 900 milljónir.
Á undan þeim Jenner og Jay-Z eru ekki ómerkilegra fólk en leikstjórinn og framleiðandinn George Lucas, hann er talinn eiga 5,4 milljarða Bandaríkjadala. Kollegi Lucas, Steven Spielberg er sagður eiga 3,7 milljarða Bandaríkjadala. Fjölmiðladrottningin Oprah Winfrey er sögð eiga 2,8 milljarða Bandaríkjadala. körfuboltahetjan Michael Jordan vermir fjórða sætið með á 1,7 milljarða.