Í umsjá aldraðra foreldra eftir sambandsslit

Heather Locklear er hætt með kærastanum.
Heather Locklear er hætt með kærastanum. AFP

Leikkonan Heather Locklear er hætt með kærastanum sínum, Chris Heisser. Er það hluti af því að slíta tengsl við fólk sem hefur slæm áhrif á hana. Locklear var með Heisser þegar hún var handtekin fyrir heimilisofbeldi og ofbeldi gegn lögreglu á síðasta ári. Hefur hann gert lítið til þess að halda henni frá vímuefnum. 

Heimildarmaður People segir Locklear sem er 57 ára vera heima hjá sér og eru það aldraðir foreldrar hennar, faðir hennar sem er 89 ára og móðir hennar sem er 85 ára, sem passa upp á hana. 

„Hún hefur það fínt. Foreldrar hennar eru hjá henni sem hefur verið gott fyrir alla sem eru virkilega nánir henni. Sú staðreynt að foreldrar hennar eru hjá henni er góð þróun og hughreystandi.“

Heimildarmaðurinn segir að Melrose Place-stjarnan þurfi jarðtengingu og að koma hlutunum í eðlilegt horf og það sé enginn betri til að veita henni það en foreldrar hennar. Einnig er stjarnan undir eftirliti læknis. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson