Margrét Edda Gnarr einkaþjálfari segist vera hætt að vera með líkama sinn á heilanum og er í meira jafnvægi núna. Hún hefur þyngst og líður betur. Hún segir á Instagram-síðu sinni að það að keppa í vaxtarrækt sé ekki ávísun á að fólk fái átröskun. Hún segist hafa undirbúið sig vel fyrir sýningar og lagt upp með að keppa á heilbrigðan hátt en játar að hún fái þráhyggju fyrir útliti sínu. Hún segir að lífið sé miklu betra þegar hún er í jafnvægi því þá líður henni betur.
Hún deilir þessu með fylgjendum sínum á Instagram. Áður var hún 56 kg en núna er hún 65 kg og líður miklu betur.
View this post on InstagramA post shared by Margret Gnarr (@margretgnarr) on Jan 15, 2019 at 7:37am PST
View this post on InstagramA post shared by Margret Gnarr (@margretgnarr) on Nov 20, 2018 at 12:06pm PST