Snjóþungt er víða í Evrópu þessa dagana. Á meðan sumir kvarta og kveina og bíða óþreyjufullir eftir sumrinu njóta aðrir til hins ýtrasta, eins og til dæmi þessir amúr-hlébarðar í dýragarðinum í Vín í Austurríki.
Amúr-hlébarðar eiga rætur sínar að rekja til Ussuri í Rússlandi og eru þeir í verulegri útrýmingarhættu. Einungis er talið að um 100 slíkir lifi villtir í suðausturhluta Rússlands og norðurhluta Kína.
Gleði hlébarðanna yfir snjónum er ósvikin eins og sjá má á myndbandinu hér að ofan og ekki er útlit fyrir að snjórinn sé á förum næstu daga.