Margrét, Sigríður og Helga heiðraðar

Viðurkenningarnar voru veittar þeim Helgu, Margréti og Sigríði við athöfn …
Viðurkenningarnar voru veittar þeim Helgu, Margréti og Sigríði við athöfn í Gamla bíói í dag. Ljósmynd/FKA

FKA, Félag kvenna í atvinnulífinu, afhenti í dag sínar árlegu viðurkenningar í Gamla bíói, en viðurkenningar FKA hafa verið veittar allt frá stofnun félagsins, sem fagnar 20 ára starfsafmæli á árinu. 

Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff, hlaut FKA-viðurkenninguna, Sigríður Snævarr sendiherra fékk Þakkarviðurkenningu FKA og Helga Valfells, framkvæmdastjóri Crowberry Capital, hlaut Hvatningarviðurkenningu FKA.

„Við erum svo rík af mannauði og krafti íslenskra kvenna og þær Margrét, Sigríður og Helga, sem FKA heiðraði í dag, standa svo sannarlega undir því nafni að vera okkur hinum miklar fyrirmyndir. Ég óska þeim og aðstandendum þeirra innilega til hamingju með daginn og þakka fráfarandi dómnefnd fyrir þeirra störf,“ segir Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA, sem afhenti verðlaunin ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Dómnefnd skipaði fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu en yfir 100 tilnefningar bárust til félagsins, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá FKA.

Margrét verið öðrum einstök fyrirmynd

Margrét Kristmannsdóttir, sem hlaut FKA-viðurkenninguna, hefur verið framkvæmdastjóri PFAFF í 25 ár. Hún situr einnig í stjórn BL, Rekstrarfélags Kringlunnar og Bankasýslu ríkisins.

Margrét hefur lengi verið meðal helstu leiðtoga í atvinnulífinu, sat í stjórn Félags atvinnurekenda á árunum 1999-2008, er fyrrverandi formaður FKA til fjögurra ára og sat í stjórninni á árunum 2002-2009. Hún var formaður Samtaka verslunar og þjónustu um fimm ára skeið til ársins 2014. Á sama tíma sat hún í framkvæmdastjórn og stjórn Samtaka atvinnulífsins, síðast sem varaformaður.

„Margrét hefur gegnt ábyrgðamiklu hlutverki í íslensku atvinnulífi í áratugi, bæði í eigin atvinnurekstri og með eftirtektarverðri þátttöku sinni í hinum ýmsu stjórnar- og félagsstörfum. Margrét hefur einnig lagt mikilvægt framlag til jafnréttismála og verið konum einstök hvatning og fyrirmynd,“ sagði dómnefnd í rökstuðningi sínum fyrir viðurkenningunni.

Helga „verið konum mikil hvatning“

Helga Valfells, sem hlaut hvatningarviðurkenningu FKA, er framkvæmdastjóri og meðstofnandi Crowberry Capital. Hún kom að stofnun Samtaka íslenskra framtaksfjárfesta árið 2018 og er stjórnarformaður félagsins. Hún er varaformaður stjórnar Íslandsbanka og Símans.

Í umsögn dómnefndar um Helgu sagði meðal annars: „Helga hefur látið til sín taka í íslensku nýsköpunarumhverfi með eftirtektarverðum hætti en hún var áður framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins en stofnaði árið 2017 framtakssjóðinn Crowberry Capital ásamt Heklu Arnardóttur og Jenny Ruth Hrafnsdóttur. Nýlega átti hún jafnframt þátt í því að koma á fót evrópsku félagi kvenna í framtaksfjárfestingum. Helga hefur í gegnum margvísleg störf sín verið konum mikil hvatning.“

Sigríður hafi átt einstakan feril

Þakkarviðurkenningu FKA 2019 hlaut Sigríður Ásdís Snævarr, sem hefur gegnt sendiherrastöðu í 28 ár og hefur hún frá 2017 veitt deild heimabúsettra sendiherra forstöðu og er nú sendiherra gagnvart Páfagarði, Singapúr og Ástralíu. Hún varð fyrst íslenskra kvenna til að gegna sendiherrastöðu þegar hún var skipuð sendiherra í Stokkhólmi árið 1991.

Sigríður hefur helgað diplómatastarfinu líf sitt. Reynsla hennar og þekking hafa gert hana að vinsælum ræðumanni. Fjörutíu ár eru síðan hún var ráðin í utanríkisráðuneytið og er sérstakt áhugasvið hennar símenntun, nýsköpun og umbreyting atvinnulífsins inn í alþjóðageirann. 

„Sigríður braut blað í sögu Íslands árið 1991 þegar hún var skipuð fyrsti íslenski kvensendiherrann, en hún á að baki fjörutíu ára farsælan feril í utanríkisráðuneytinu. Á einstökum ferli, bæði í stjórnsýslu  og atvinnulífi, hefur hún helgað sig því að gæta hagsmuna lands og þjóðar og leita tækifæra fyrir Ísland á alþjóðlegri grundu,“ sagði dómnefnd meðal annars um Sigríði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant