Snýr aftur á baðfötum á sextugsaldri

Paulina Porizkova er mætt aftur.
Paulina Porizkova er mætt aftur. skjáskot/Instagram

Paulina Porizkova, ein vinsælasta fyrirsætan á níunda áratugnum, er mætt aftur. Fyrirsætan sem prýddi fyrst forsíðu sundfataútgáfu Sports Illustrated árið 1984 situr aftur fyrir í blaðinu á sextugsaldri, 35 árum eftir að hún sat fyrir á sinni fyrstu forsíðu fyrir tímaritið og 30 árum eftir að hún sat síðast fyrir tímaritið. 

Porizkova sem verður 54 ára í vor segist í viðtali við People hafa tekið vel í að sitja fyrir aftur í blaðinu í fyrstu. Hún hugsaði ekki fyrr en seinna að hún þyrfti að sitja fyrir með fullt af tvítugum stelpum í blaðinu. Þó að hún segist vera talsmaður þess að konur séu fallegar og kynþokkafullar á hvaða aldri sem er segir hún henni ekki alltaf líða þannig. Það hafi ekki hjálpað að myndatakan var rétt eftir jól með öllu smákökuátinu sem fylgir þeim. „En að neita kom ekki til greina,“ sagði fyrirsætan. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant