Körfuboltamaðurinn Lamar Odom finnur til með Khloé Kardashian og er leiður yfir að hún hafi verið særð enn á ný, samkvæmt ónefndum heimildarmanni People. Fréttir bárust af því fyrr í vikunni að Khloé hafi slitið samvistir við barnsföður sinn, körfuboltamanninn Tristan Thompson, vegna ásakana um framhjáhald.
Odom og Kardashian voru gift í tæp sjö ár frá 2009 til 2016. Hjónaband þeirra var ekki dans á rósum og segist Odom sjá eftir hvernig hann hagaði sér á meðan þau voru gift. Khloé sótti tvisvar um skilnað meðan á hjónabandi þeirra stóð. Hún stóð þó þétt við bakið á honum eftir að hann lenti á spítala eftir að hafa tekið of stórann skammt af lyfjum árið 2015.