Meðleikarar minnast Perry

Fyrrverandi meðleikarar Luke Perry úr sjónvarpsþáttunum Beverly Hills 90210 og Riverdale minnast vinar síns á samfélagsmiðlum en hann lést í morgun aðeins 52 ára gamall.

Á meðal leikara sem hafa tjáð sig um dauða hans eru Ian Ziering, Kathleen Robertson og Emma Caulfield Ford sem léku á móti honum í fyrrnefnda þættinum, að því er Hollywood Reporter greindi frá. 

Molly Ringwald, sem lék á móti honum í Riverdale, hefur einnig minnst hans, ásamt mörgum fleirum.

Tökum á Riverdale var frestað í dag vegna andláts Perry.

„Þú varst glöð og fjörmikil sál,“ sögðu handritshöfundar Riverdale á Twitter. „Þín verður minnst og þá sérstaklega arfleifðar þinnar að eilífu. Hvíldu í ást og friði vinur.“

Luke Perry í júlí í fyrra.
Luke Perry í júlí í fyrra. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant