Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur orðið fyrir barðinu á kjaftasögunum í gegnum tíðina. Hann segir þær alls ekki allar sannar þótt hann játi að hafa klikkaðan húmor á köflum.
„Það getur verið að ég noti hráar aðferðir við að koma mér í gegnum daginn,“ segir Kári í samtali við Loga Bergmann í þættinum Með Loga sem sýndur verður í Sjónvarpi Símans Premium á fimmtudaginn.