Pabbi Spears mun einn ráða yfir henni

Britney Spears fer ekki ein með fjárhaldsmál sín.
Britney Spears fer ekki ein með fjárhaldsmál sín. mbl.is/AFP

Hin 37 ára gamla poppdrottning Britney Spears hefur ekki haft leyfi til að taka persónulegar eða fjárhagslegar ákvarðanir án samþykkis fjárhaldsmanna í rúm tíu ár. Faðir hennar sem og lögfræðingurinn Andrew Wallet hafa farið með mál hennar en nú vill lögfræðingurinn út. 

The Blast greinir frá því að Wallet hafi sótt um að fá að hætta sem annar fjárhaldsmaður söngkonunnar á mánudaginn og vonast hann til þess að dómstóll samþykki ósk hans sem fyrst. 

Þegar beiðni Wallet verður samþykkt verður faðir Spears, Jamie Spears, sá eini sem fer með mál hennar. Heimildarmenn The Blast segja að Wallet sé að fara á eftirlaun og faðir söngkonunnar hafi hvort sem er farið að mestu leyti með mál hennar. 

Jamie Spears ásamt dóttur sinni Britney Spears.
Jamie Spears ásamt dóttur sinni Britney Spears. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson