Raunveruleikastjarnan og snyrtivöruframleiðandinn Kylie Jenner er yngsti sjálfgerði milljarðamæringur í heimi samkvæmt Forbes. Jenner verður 22 ára seinna á árinu en í fyrra var greint frá því að hún ætti 900 milljónir dollara, nú eru eignir hennar metnar á einn milljarð dollara.
Með þessum nýja lista skýtur Jenner Facebook-stofnandanum Mark Zuckerberg ref fyrir rass sem varð yngsti sjálfgerði milljarðamæringur í heimi 23 ára.
Hagnaður fyrirtækis Jenner, Kylie Cosmetics, er talinn hafa verið 360 milljónir dollara í fyrra. Jenner á fyrirtækið ein og þakkar samfélagsmiðlum vinsældir snyrtivörumerkisins. Í fyrra voru snyrtivörurnar í fyrsta skipti seldar í búðum en áður höfðu þær verið seldar á netinu. Ekki var þó eytt krónu í hefðbundna markaðssetningu vegna þess að vörurnar fóru í verslanir og er það fáheyrt.