Beckham féll fyrir hrekk Cordens

Þeir David Beckham og James Corden eru hér með höfuðið …
Þeir David Beckham og James Corden eru hér með höfuðið af Beckham-styttunni. Skjáskot/Facebook-síða David Beckhams

Breski þáttastjórnandinn James Corden gabbaði á dögunum samlanda sinn fótboltakappann David Beckham með því að láta útbúa styttu af kappanum, sem átti töluvert sameiginlegt með mislukkuðum skúlptúrum af þeim Ronaldo og Mohammed Salah, sem vakið hafa mikið umtal aðdáenda.

Beckham sjálfur virðist þó hafa húmor fyrir gabbinu, því hann vekur athygli á hrekknum á Facebook-síðu sinni. Segir hann Corden hafa náð að blekkja sig fullkomlega og birtir með hlekk í YouTube-myndband af þessum umsvifamikla og ítarlega hrekk.

Corden fékk m.a. til liðs við sig forsvarsmenn LA Galaxy, bandaríska liðsins sem Beckham lék með, og lét útbúa styttu í meira en fullri stærð af fótboltakappanum með teygðu andliti, stórum rassi og óvenjulöngum handleggjum sem Beckham virtist lítast verulega illa á. „Það eina sem er í lagi er hárið,“ sést Beckham segja við leikarann sem dulbúinn hafði verið sem myndhöggvarinn sem vinnur að gerð raunverulegrar styttu sem LA Galaxy ætlar að reisa af Beckham við leikvang sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson