Vonaði að Perry myndi svara sér eftir lát hans

Brian Austin Green ásamt konu sinni Megan Fox. Hann er …
Brian Austin Green ásamt konu sinni Megan Fox. Hann er enn að syrgja vin sinn Luke Perry. mbl.is/AFP

Í síðustu viku var Beverly Hills 90210-stjarnan Brian Austin Green gagnrýndur fyrir að hafa ekki tjáð sig opinberlega eftir að Luke Perry lést. Green talaði fallega um Perry í nýjum hlaðvarpsþætti sínum er Us Weekly greinir frá en Perry lék í unglingaþáttunum með Green. 

Segist Green hafa reynt að senda Perry skilaboð eftir að hann fékk fréttirnar af láti Perry. „Ég sendi honum skilaboð eftir að hann lést vitandi það að hann gat augljóslega ekki svarað mér. En á einhvern hátt var ég að vona að hann myndi svara mér eða hann væri þarna úti einhvers staðar,“ sagði Green. Segist hann vita að Perry sé þarna úti einhvers staðar að horfa niður á hann og brosa. 

Green sagði Perry hafa verið sérstakan mann. Enginn eigi slæma sögu um hann. Hann hafi einfaldlega verið frábær maður. Hann segist jafnframt enn vera að syrgja enda búist enginn við að missa vin eða samstarfsfélaga sem er aðeins 52 ára gamall. 

Luke Perry.
Luke Perry. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á endanum haft breytingar í för með sér. Gríptu til viðeigandi ráðstafana í tæka tíð.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler