Lét fyrrverandi vita af bónorðinu

Anna Faris og Chris Pratt eru skilin.
Anna Faris og Chris Pratt eru skilin. mbl.is/AFP

Leikkonan Anna Faris tjáir sig um samband sitt og Chris Pratt en hjónin sem eiga saman eitt barn tilkynntu um skilnað sinn árið 2017. Leikarahjónin fyrrverandi virðast reyna að gera gott úr stöðunni eins og Faris greindi frá í hlaðvarpsþætti um skilnað

Bæði Faris og Pratt eru komin í alvarleg sambönd en samkvæmt Page Six greindi Faris frá því í þættinum að Pratt hefði hringt í hana áður en hann bað unnustu sinnar, Katherine Schwarzenegger. 

„Ég ætla að biðja Katherine um að giftast mér. Ég vildi bara láta þig vita fyrir fram,“ sagði Faris að Pratt hefði sagt þegar hann hringdi áður en hann bað um hönd dóttur Arnold Schwarzenegger. „Það er frábært,“ sagði Faris þá og benti á að hún mætti framkvæma hjónavígslur. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant