Áttaði sig á að hann væri ekki reiður

Alec Baldwin og Hilaria Baldwin.
Alec Baldwin og Hilaria Baldwin. mbl.is/AFP

Grínleikarinn Alec Baldwin er búinn að fara á reiðistjórnunarnámskeið og útskýrði betur í útvarpsþætti Howard Stern hvað kom fyrir á bílastæðinu í nóvember þegar hann var handtekinn eftir rifrildi við nágranna um bílastæði. 

Baldwin segir að því miður fyrir manninn sem sakaði hann um að hafa kýlt sig þá hafi myndavélar alls staðar sýnt vel að Baldwin kýldi hann ekki. Kærunni var því breytt í áreitni. 

Baldwin segist hafa liðið eins og maðurinn hafi ætlað að ráðast á eiginkonu sína og son þeirra. Hann tekur ekki undir að honum hafi stafað ógn af manninum heldur fannst hann bara vera dónalegur og við það að vera hættulegur. 

Leikarinn játaði sig sekan þegar málið fór fyrir dóm og samþykkti að fara á reiðistjórnunarnámskeið í einn dag. Hann segist hafa áttað sig á að hann sé ekki svo reiður eftir að hafa farið á reiðistjórnunarnámskeið þar sem þar er að finna mun reiðara fólk. 


 

Alec Baldwin fór fyrir dóm eftir rifrildi vegna bílastæðis.
Alec Baldwin fór fyrir dóm eftir rifrildi vegna bílastæðis. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant