Svarar fyrir sig eftir sögurnar um Mel B

Geri ásamt eiginmanni sínum Christian Horner.
Geri ásamt eiginmanni sínum Christian Horner. mbl.isAFP

Á dögunum játaði Kryddpían Mel B að hafa sofið hjá vinkonu sinni Geri. Um helgina var því svo haldið fram að sambandið hefði ekki verið bara einna nætur gaman heldur enst í heilt ár. Þá fékk Geri nóg og sendi frá sér yfirlýsingu. 

„Það voru mjög mikil vonbrigði að lesa þessar sögur aftur, sérstaklega á mæðradaginn af öllum dögum,“ sagði talsmaður Geri í gær, sunnudag, að því er kemur fram á vef Mirror. „Hún vill að þið vitið að það sem hefur nýlega verið haldið fram er einfaldlega ekki satt og hefur sært fjölskyldu hennar.“

Er Geri jafnframt sögð elska hinar Kryddpíurnar fjórar og sögð ekki geta beðið eftir því að hitta þær og aðdáendurna á fyrirhuguðu tónleikaferðalagi í sumar. 

Mel B, Geri, Emma og Mel C árið 2012.
Mel B, Geri, Emma og Mel C árið 2012. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson