Harry prins mun ekki taka við greiðslu fyrir vinnu sína að heimildaþáttunum. Hann hefur farið þess á leið við Apple að það láti heldur fé af hendi rakna til góðgerðarmála.
Harry prins, hertoginn af Sussex, ætlar í samstarfi við Opruh Winfrey að vinna að gerð heimildaþátta um heilsu fyrir Apple. Verða þau höfundar og framleiðendur þáttanna. Harry segir að þættirnir eigi að vera jákvæðir, fræðandi og uppörvandi og að markmiðið sé að áhorfendur „skilji sjálfa sig og aðra í kringum sig betur“.
Harry tilkynnti samstarfið á Twitter og skrifaði: Ég trúi því staðfastlega að góð geðheilsa - geðheilbrigði - sé lykillinn að öflugri forystu, frjóum samfélögum og að fólk finni tilgang.“
Hann segir það mikla ábyrgð að vanda til verka, að staðreyndum sé miðlað og sömuleiðis vitneskju um það sem er að gerast í kringum okkur.
Oprah Winfrey var meðal gesta í brúðkaupi Harrys og Meghan Markle. Í síðasta mánuði þá var hún viðstödd er Apple TV Plus var ýtt úr vör og tilkynnti við það tilefni að hún væri að vinna að tveimur nýjum þáttaröðum fyrir Apple.
Harry prins mun ekki taka við greiðslu fyrir vinnu sína að heimildaþáttunum. Hann hefur farið þess á leið við Apple að það láti heldur fé af hendi rakna til góðgerðarmála.