Kim stefnir á lögmannsréttindi 2022

Kim Kardashian er ekki öll þar sem hún er séð.
Kim Kardashian er ekki öll þar sem hún er séð. mbl.is/AFP

Kim Kardashian West hefur látið sig málefni fanga varða og nú segist hún vera byrjuð að búa sig undir lögmannspróf. Raunveruleikastjarnan sem er ekki með háskólamenntun segir í nýju viðtali við Vogue að hún stefni á að fá lögmannsréttindi árið 2022. Í nokkrum ríkjum í Bandaríkjunum er hægt að fara aðra leið en að klára lögfræði í háskóla til þess að taka lögmannspróf. Þarf fólk þá að vera í læri hjá lögmönnum eða dómurum. 

Kardashian upplýsir að hún hafi hafið fjögurra ára starfsnám hjá lögmannsstofu í San Francisco til þess að búa sig undir prófið. Ætlar hún að sérhæfa sig í refsirétti. Hún tók ákvörðunina síðasta sumar og hefur þurft að vinna 18 tíma á viku undir handleiðslu lögmanns. Hluti af starfsnáminu fer fram í gegnum netið svo hún þarf ekki alltaf að ferðast til San Francisco. Kim Kardashian segir stolt frá því að hún hafi fengið tíu í sínu fyrsta prófi. Í sumar mun Kardashian West taka próf sem segir til um hvort hún geti haldið áfram næstu þrjú árin. 

Var það lögfræðingurinn Jessica Jackson sem sá að Kardashian West bjó yfir hæfileikum í lögfræði og nefndi hugmyndina við Kardashian West. Sjálf hafði Jackson farið seint í skóla. 

Faðir stjörnunnar var lögmaður O. J. Simpson. Í viðtalinu er eiginmaður Kardashian West, Kanye West, spurður hvort nýjasta útspil stjörnunnar hafi komið honum á óvart. Hann segir svo ekki, hún hafi alltaf haft þetta í sér. 

Kar­dashi­an fundaði fyrir tæpu ári með Donald Trump í lok maí um fang­els­is­mál og refs­ing­ar. Þá tóku þau sér­stak­lega fyr­ir mál hinn­ar 63 ára gömlu Alice Marie John­son. Trump mildaði síðar dóm John­son en hún hafði hlotið lífstíðardóm fyr­ir minni hátt­ar fíkni­efna­brot. 

Kim Kardashian.
Kim Kardashian. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson