Áhugaverðara en þar sem ríka fólkið býr

„Ástæðan fyrir því að við fórum til Dúbaí og Kúveit var að við fundum mann sem heitir Axel sem er konditori, sætabrauðsdrengur eins og ég kýs að kalla það á íslensku. Hann vinnur í Kúveit og Dúbaí," segir Ólafur Örn um viðmælanda sinn í þættinum Kokkaflakk en þátturinn er sýndur í Sjónvarpi Símans Premium. 

„Dúbaí er borg sem er frekar sérkennileg. Þar sem ferðamenn eru, er allt svona eins og leikmynd. Voða fínar byggingar og flottir restaurantar og fínir bílar og allt. Svo keyrir maður bara í hálftíma og er kominn þar sem þjónustufólk fyrir ríka fólkið býr og þar er geggjað. Það finnst mér miklu áhugaverðari staður að vera," segir hann. 

Svo barst talið að Kúveit þar sem ríku olíufurstarnir eyða deginum sínum. Þar finnur Ólafur heiðarlegan arabískan mat.

„Það sem kom mér á óvart var hversu lítið mál það var að eiga þrjá áfengislausa daga í Kúveit. Það var ekkert stórmál," segir hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant