Áður óútgefin Prince-lög á nýrri plötu

Ný plata eftir poppgoðið sáluga kemur út 7. júní. Hér …
Ný plata eftir poppgoðið sáluga kemur út 7. júní. Hér taka aðdáendur sjálfsmyndir fyrir framan stóra mynd af Prince á tónlistarhátíð í New York árið 2016. AFP

Ný hljómplata með lögum eftir tónlistarmanninn Prince mun koma út í júní, samkvæmt tilkynningu frá félaginu sem hefur umsjá með því safni verka sem liggja eftir listamanninn, sem lést árið 2016, þá 57 ára gamall. Platan mun bera heitið Originals.

Fimmtán lög verða á plötunni, sem kemur fyrst út á streymisveitunnni Tidal 7. júní næstkomandi, en það er einmitt fæðingardagur Prince. Platan kemur síðan út í áþreifanlegu formi 21. júní.

Flest lögin á plötunni voru tekin upp á níunda áratug síðustu aldar, og 14 þeirra hafa ekki verið gefin út áður. Á meðal laganna eru demó-útgáfur af lögum sem að Prince samdi fyrir aðra listamenn, til dæmis demó af laginu Manic Monday sem Prince samdi fyrir The Bangles.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson