Fær að hitta syni sína í dag

Britney Spears hefur lokið meðferðinni og hittir syni sína í …
Britney Spears hefur lokið meðferðinni og hittir syni sína í dag. AFP

Tónlistarkonan Britney Spears fær að hitta börnin sín í dag, en Spears hefur eytt síðustu vikum á meðferðarstöð sem leggur áherslu á andlega heilsu. Spears hefur átt erfitt síðustu misseri og ákvað að leita sér hjálpar fyrir um mánuði síðan. Spears kláraði meðferðina á miðvikudag og líður mun betur að sögn heimildarmanna TMZ.

Spears á drengina Sean og Jayden, 12 og 13 ára með tónlistarmanninum Kevin Federline. Þau Federline deila forræði yfir sonum sínum og hafa skipst á að hafa þá þrjá daga í röð til skiptis. Síðustu mánuði hefur það skipulag þó ekki gengið upp hjá þeim, en Spears hefur átt erfitt. Hún hefur þó hitt synina reglulega en þeir hafa að mestu verið hjá Federline. Í dag mun hún hins vegar taka við sonum sínum og eyða næstu þremur dögum með þeim. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson