Hneig niður á tískupallinum og dó

Tales Cotta lést á tískuvikunni í Sao Paulo.
Tales Cotta lést á tískuvikunni í Sao Paulo. skjáskot/Instagram

Brasilíska fyrirsætan Tales Soares eða Tales Cotta eins og hann kallaði sig hneig niður á tískupallinum á tískuvikunni í Sao Paulo um helgina og dó. Cotta sem var aðeins 26 ára hneig niður rétt eftir að hann snéri við og undirbjó sig að ganga út af sviðinu. Atvikið náðist á myndband eins og sjá má hér að neðan. 

CNN greinir frá því að hann hafi fengið hjálp eftir fallið auk þess sem farið hafi verið með á spítala þar sem hann dó svo. Ekki er vitað hvað olli dauða fyrirsætunnar en umboðsskrifstofa hans minntist hans fyrir fyrirmyndar hegðun hans. Var hann sagður aldrei hafa kvartað undan heilsuvanda en hann var sagður grænmetisæta sem borðaði hollt. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant