Jude Law kvæntist ástinni sinni

Jude Law gekk í hjónaband í annað sinn 1. maí.
Jude Law gekk í hjónaband í annað sinn 1. maí. AFP

Hollywood-stjarnan Jude Law gekk í hjónaband í London í gær, 1. maí. The Sun greinir frá því að Law og Phillipa Coan hafi gift sig í ráðhúsi í miðbæ London í gærmorgun en stjörnuvinir þeirra fengu ekki boð í brúðkaupið. 

Law er 46 ára en Coan er hins vegar einungis 32 ára og hafa hjónin verið saman í þrjú ár. Coan er sálfræðingur og rekur fyrirtæki sem hjálpar starfsfólki að standa sig betur í vinnunni. 

Law hefur verið kvæntur einu sinni áður en hann og leikkonan Sadie Frost skildu árið 2003 og eiga þrjú börn saman. Hann eignaðist sitt fjórða barn með bandarísku fyrirsætunni Samönthu Burke fyrir níu árum. Fimmta barnið eignaðist hann svo með tónlistarkonunni Catherina Harding árið 2015. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant