Tónlistarkonan Kelly Clarkson fór í aðgerð á miðvikudagsnóttina, nokkrum klukkustundum eftir Billboard-tónlistarhátíðina þar sem botnlangi hennar var fjarlægður. Clarkson, sem var kynnir á hátíðinni annað árið í röð, hafið fundið fyrir verkjum í kviðnum alla vikuna. Hún segist hafa hnigið niður vegna verkja eftir að tónlistarhátíðin var afstaðin. Clarkson lét verkina ekki á sig fá meðan á hátíðinni stóð og söng tvö lög.
Not gonna lie.... I may or may not have broken down in tears after the show from pain 😬 BUT thanks 2 all the amazing people @ Cedars-Sinai I flew home directly after the event, nailed the surgery early this morning, & feeling awesome now! Bye bye appendix 🤣 #TheShowMustGoOn 💁🏼♀️ https://t.co/eL9HoVlSiM
— Kelly Clarkson (@kelly_clarkson) May 2, 2019
Clarkson ætlar ekki að gefa sér tíma til að jafna sig, en hún er dómari í hæfileikakeppninni The Voice þar Vestanhafs. Næsti þáttur er í beinni útsendingu á mánudagskvöldið og stefnir hún á að mæta.