Fyrstu æfingu Hatara er nú lokið og hefur hún gengið ansi vel sé mark takandi á myndband af æfingunni. Var þetta sú æfing þar sem sveitin fær mestan tíma með framleiðsluliðinu til þess að fara í gegnum atriðið.
„Þetta verða einhver fjögur til fimm rennsli í gegnum atriðið þar sem við reynum að laga allt á milli rennslna. Síðan setjumst við niður til þess að horfa á það eftir á og gerum svo okkar athugasemdir,“ hafði mbl.is í gær eftir Felix Bergssyni, fararstjóra íslenska liðsins, um æfinguna í dag.