Leikkonan Jameela Jamil hefur barist ötullega fyrir heilbrigðri líkamsvitund. Hún er þekkt víða um heiminn fyrir hlutverk sitt í þáttunum The Good Place. Leikkonan þykir einstaklega falleg en hún notar frægð sína öðruvísi en margir aðrir þar sem hún reynir að hafa góð áhrif á veröldina.
Í nýlegri færslu á Instagram fjallar Jamil um það að andlegt ofbeldi er aldrei afsökun fyrir því að níðast á öðrum. Boðskapur skilaboða hennar er m.a. að enginn skyldi taka við afsökun fyrir andlegu ofbeldi með útskýringum sem þessum.
„Ef þú kemur ekki illa fram við aðra ertu sönnun þess að andlegt ofbeldi elur ekki af sér andlegt ofbeldi. Að undanskildu því þegar fólk ákveður að endurvinna illskuna.“
Fólkið mælir með vikulegum skammti af skilaboðum frá Jameela Jamil.
View this post on InstagramYou don’t owe your abuser SHIT. 🚮
A post shared by Jameela Jamil (@jameelajamilofficial) on May 9, 2019 at 6:09am PDT