Sonur Kim og Kanye kominn í heiminn

Kim Kardashian and Kanye West á Met Gala á mánudaginn. …
Kim Kardashian and Kanye West á Met Gala á mánudaginn. Þeim hefur nú fæðst sonur. AFP

Fjórða barn Kim Kardashian og Kanye West er komið í heiminn, heilbrigður og hraustur drengur, sem parið eignaðist með aðstoð staðgöngumóður. Þetta staðfesti Kim á Twitter í dag. Færslan um fæðingu drengsins týndist reyndar innan um ótal færslur um nýju snyrtivörulínu Kim sem er nú fáanleg, en þannig er Kim bara. 

Fregnir af barnaláninu bárust í janúar en fyrir eiga hjónin þrjú börn, þau North, Saint og Chicago, en það síðastnefnda eignuðust þau einnig með aðstoð staðgöngumóður. Kim segir að nýfæddi drengurinn sé mjög líkur systur sinni Chicago, en muni án efa breytast mikið á næstu dögum og vikum.

Kim hefur tjáð sig opinskátt um erfiðleikana sem hún hefur glímt við á meðgöngu vegna viðgróinnar fylgju og því hafi hjónin kosið að nýta sér aðstoð staðgöngumóður.

Kris Jenner, móðir Kim, greindi frá því í spjallþætti Ellen Degeneres í gær að staðgöngumóðirin væri farin af stað í fæðingu og því væri von á barninu innan tíðar.

Kim átti sjálf að mæta í þáttinn, en ástæðan fyr­ir því að hún var vant við lát­in var sú að hún var uppi á spít­ala að taka á móti fjórða barni sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson