Í atriði söngkonunnar Madonnu og rapparans Quavo á Eurovision í kvöld mátti sjá Palestínufána á bökum dansaranna. Þegar þeir gengu útaf sviðinu virtust skilaboðin vera þau, að Ísrael og Palestína skyldu fara hönd í hönd.
Klifað hefur verið á því að hátíðin skuli ópólitísk og þetta uppátæki dansaranna, eða Madonnu sjálfrar, stingur að einhverju marki í stúf við þá fyrirhuguðu ráðstöfun. Ekki liggur fyrir hvort þetta hafi verið í samráði við stjórnendur keppninnar.
Fólk var ánægt með framtakið á Twitter en eins og þekkt er hefur hart verið tekist á um hvort Ísland hafi yfir höfuð átt að taka þátt í keppninni í ár, þar sem hún er haldin í Tel Aviv. Af þeim sem hafa slíkar fullyrðingar uppi er Ísraelsríki sagt vera að hernema Palestínu.
Þegar Madonna mætir í Eurovision í Ísrael og segir allt sem mig langar til að verði❤️ #12Stig ##ESC pic.twitter.com/nDSYZkh6Yn
— Sólveig Pálsdóttir (@sollakp) 18 May 2019
Ókei, Madonna söng kannski illa fram að átótúninu en vel af sér vikið að koma palestínska fánanum fram hjá Mossad. #12stig pic.twitter.com/pCyAtgajqq
— Davíð Roach (@DavidRoachG) 18 May 2019
MADONNA JUST ENDED ISRAEL #Eurovision pic.twitter.com/UQ5zbV6cBP
— 𝐏𝐚𝐩𝐩𝐚𝐠𝐚𝐥𝐥𝐢 ⚙️🇮🇸 (@pappagalIi) 18 May 2019