Ætlum ekki að spila Wham-lög!

Simon Le Bon.
Simon Le Bon.

Árið er 1983. Ólánlegur unglingur liggur í fleti og nennir fáu. Í kassettutækinu snýst snælda með upptökum úr Lögum unga fólksins. Það eina sem letipúkinn í rúminu nennir að gera er að teygja höndina að kassettutækinu til að ýta á takkann til að spóla til baka þegar laginu lýkur. Að hlusta á sama lagið aftur og aftur er best í heimi. Já, og fletta nýjasta Bravo-blaðinu þar sem hljómsveit, skipuð fimm Bretum frá Birmingham, prýðir allflestar síðurnar.

Á 9. áratugnum prýddu plaköt með Duran Duran veggi margra …
Á 9. áratugnum prýddu plaköt með Duran Duran veggi margra unglingaherbergja.

Hljómsveitin heitir Duran Duran og lagið er Hungry Like the Wolf. Veggina prýða plaköt og myndir sem hafa verið klipptar út úr Bravo-blöðum, á einu plakatinu stendur Simon Le Bon söngvari sveitarinnar hvítklæddur, í bláröndóttum bol. Gleiður með krosslagða arma, blásið hár, sítt að aftan og rautt ennisband horfir hann tregafullum augum beint inn í unglingaherbergið í Norðurbænum í Hafnarfirði.

36 árum síðar.........

Árið er 2019.

„Viltu taka símaviðtal við Simon Le Bon?,“ spyr Orri Páll Ormarsson vinnufélagi minn á Morgunblaðinu. „Ehhhh.. voru fyrstu viðbrögð.“ Síðan: „Ertu að djóka í mér?“

Eftir að hafa fengið fullvissu frá Orra um að ekki væri um spott og spé að ræða, heldur væri þetta tilboð borið fram í fullri alvöru, Sunnudagsblaði Morgunblaðsins hefði verið boðið að taka einkaviðtal við Le Bon og hann vissi að ég hefði talsvert dálæti á Duran Duran, þáði ég boðið með þökkum.

En ekki hvað.

Því að þegar tækifæri gefast til að láta draumana rætast þá grípur maður þau. Og undirbýr sig eins og maður mögulega getur þegar manni býðst viðtal við átrúnaðargoð unglingsáranna (og aðeins lengra fram eftir aldri) með tveggja klukkustunda fyrirvara.

Mér var uppálagt að hringja í fjölmiðlafulltrúa Le Bons klukkan 14:20. Sem ég gerði og eftir að við höfðum kynnt okkur og hún fengið að vita nánari deili á mér gaf hún mér samband.

Ferill Le Bon spannar hátt í fjóra áratugi. Hann segir …
Ferill Le Bon spannar hátt í fjóra áratugi. Hann segir það vera forréttind að fá að skemmta fólki.

Ég byrjaði á því að kynna mig og spyrja hvort ég væri að tala við herra Le Bon. „Já, svo sannarlega ertu að því,“ svaraði fjörleg rödd á hinum enda línunnar. Þetta var býsna kunnugleg rödd, enda sú hin sama og sem söng Girls on Films, The Reflex, Hungry Like the Wolf, View to a Kill og fjölmörg önnur klassísk popplög.

„Og hvernig hefurðu það svo í dag?“ var næsta spurning blaðamanns sem reyndi af alefli að muna helstu kurteisisreglur um leið og hjartað barðist ótt og títt.

Er ég í alvörunni að tala við hann? Getur þetta verið?

„Ég hef það alveg frábært,“ svarar Simon. „Mikið er gaman að tala við þig á svona fallegum degi, Anna.“

Simon Le Bon sagði nafnið mitt!

Samræðurnar hófust á sígildan hátt; við töluðum um veðrið. Kannski hefur einhver sagt honum að Íslendingar gjörsamlega elska að tala um veðrið. „Sólin skín hérna í London, þetta er fyrsti sólardagurinn sem ég upplifi í ár í London og vá, hvað það er hlýtt,“ segir söngvarinn kátur.

Blaðamaður leit út um gluggann á ritstjórnarskrifstofunni og sá bara rigningu og gráma. „Hér á Íslandi rignir, en vonandi færðu betra veður þegar þú kemur til okkar í sumar.“

„Það þykir mér leitt að heyra, en það er yndislegt hér í London. Algjörlega dásamlegt.“

Margir glöddust þegar spurnir bárust af því að Duran Duran ætlaði að halda tónleika á Íslandi í sumar.

„Mikið er gaman að heyra það. Ég hlakka gríðarlega mikið til.“

Hvers vegna?

„Það er frábært að halda tónleika á Íslandi. Ég kom til ykkar fyrir 14 árum og veit allt um það,“ segir Simon.

Smekkfull Egilshöllin gekk af göflunum 30. júní 2005 þegar Simon …
Smekkfull Egilshöllin gekk af göflunum 30. júní 2005 þegar Simon Le Bon eggjaði John Taylor, bassaleikara Duran Duran áfram með því að hrópa: Play the fucking bass John! Le Bon lofar stuði langt fram á nótt á tónleikunum í Laugardalshöll 25. júní í sumar. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Ég var gestur á þeim tónleikum og tek undir það að tónleikarnir í Egilshöll sumarið 2005 hafi verið sérlega vel heppnaðir. Ég segi síðan Simon að Duran Duran eigi fjölmennan og dyggan aðdáendahóp hér á landi og að í honum sé fólk á öllum aldri. Það gleður hann mjög.

„Vá, það er frábært! Ég vissi það ekki, stundum heldur maður að flestir okkar aðdáendur hafi fylgt okkur síðan á 9. áratugnum. Það er gaman að heyra að það hafi bæst í aðdáendahópinn.“

Það er frábært að halda tónleika á Íslandi að mati …
Það er frábært að halda tónleika á Íslandi að mati Simons Le Bon, söngvara Duran Duran.

Nýt þess að vera rokkstjarna

Tónleikarnir, sem verða hér á landi í sumar, eru ekki hluti af eiginlegri og skipulagðri tónleikaferð, heldur ákváðu meðlimir sveitarinnar að fara þangað sem þá langaði til að fara og bjóða heimamönnum upp á tónleika. Simon segir að sveitin verji talsverðum tíma í upptökustúdíói þessa dagana, en félagarnir hafi verið orðnir óþreyjufullir eftir að komast út á meðal fólks, eins og hann orðaði það og því hafi verið brugðið á þetta ráð. „Já, við erum bara að velja vandlega þá staði sem við viljum fara á. Við fengum gott tilboð frá Íslandi, okkur var sagt að við ættum fjölda aðdáenda þar. Það var kominn tími til að við færum þangað aftur. Svo við sögðum: Já! Förum þangað!“

Á 9. áratugnum voruð þið vinsælasta hljómsveit heims.... „Ó, já, heldur betur,“ skýtur viðmælandinn inn í. Er það þung byrði að bera, að vera tengdur svona sterkt við tímabil sem var fyrir meira en 30 árum? Kemur þetta í veg fyrir framþróun sveitarinnar?

„Nei, ég myndi ekki segja það. Auðvitað nutum við þessarar gríðarlegu velgengni á þessum tíma. En við erum listamenn, við erum tónlistarmenn og þetta er langtímaverkefni hjá okkur. Að fá nýjar hugmyndir, að semja nýja tónlist – það er okkar starf.“

Vá, hvað ég hef skemmt mér ....

Ferill þinn nær yfir næstum því 40 ár....

„Já, það er rétt. Ég gekk til liðs við sveitina sumarið 1980, það eru næstum því 40 ár síðan. Og tíminn hefur liðið svoooooo hratt,“ segir Simon og hálfpartinn æpir síðustu orðin til áhersluauka.

Já, er það? Hafa þessi ár liðið svona hratt?

„Já, tíminn flýgur þegar maður skemmtir sér. Og vá, hvað ég hef skemmt mér.“

Tónlist er svo stór hluti af lífi mínu og hefur …
Tónlist er svo stór hluti af lífi mínu og hefur alltaf verið, segir Simon í viðtalinu.

Hvað viðheldur áhuganum á því að vinna við tónlist?

„Það eru nokkrar ástæður. Í fyrsta lagi elska ég tónlist. Hún er svo stór hluti af lífi mínu og þannig hefur það alltaf verið. Þegar maður er farinn að vinna við þetta, þá er eiginlega ekkert annað starf sem kemur til greina. Svo nýt ég þess að vera sem mest með félögum mínum í hljómsveitinni, við erum mjög, mjög, alveg sérstaklega góðir vinir. Við gerum okkur grein fyrir því að við sköpum miklu betri tónlist saman en hver í sínu lagi. Og svo elska ég þennan lífsstíl! Ég nýt þess í botn að vera rokkstjarna! Fjölskylda mín nýtur þess líka heldur betur að ég sé rokkstjarna,“ bætir Simon skellihlæjandi við og í bakgrunni heyrast hávær hlátrasköll.

„Heyrirðu í þeim? Þau eru með mér hérna í bílnum. Og þeim finnst ég enn býsna fyndinn eftir öll þessi ár!“ Og hláturinn heldur áfram, bæði í bíl Le Bon fjölskyldunnar sem var á ferð í London og á ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins í Hádegismóum í Reykjavík.

Blaðamaður spyr áhyggjufullur hvort Simon sé nokkuð að keyra og tala í símann á sama tíma. „Nei, auðvitað ekki,“ er svarið. „Miklu ábyrgari einstaklingur en ég situr á bak við stýrið.“

Á tónleikum Duran Duran í Las Vegas í Nevadaríki í …
Á tónleikum Duran Duran í Las Vegas í Nevadaríki í Bandaríkjunum í febrúar síðastliðnum.

Heldurðu með Duran Duran eða Wham?

Tónlist Duran Duran er gjarnan skilgreind sem nýrómantík, tónlistarstefna sem naut mikillar hylli á fyrstu árum 9. áratugarins. Meðal annarra hljómsveita sem vinsælar voru á þessum tíma voru Spandau Ballet, Culture Club, Eurythmics, Ultravox og margar fleiri.

Að sögn Simons stilltu fjölmiðlar, einkum tónlistartímarit, Duran Duran upp sem keppinauti, jafnvel óvini, annarra vinsælla hljómsveita á þessum tíma aðallega Spandau Ballet og Culture Club. „Það var fullyrt að það væri ekki hægt að hlusta á bæði Duran Duran og Culture Club, það yrði að velja á milli. Þetta var bara kjaftæði! Sögur, sem voru búnar til í þeim tilgangi einum að selja fleiri blöð. Reyndar vorum við mjög góðir vinir flestra sem voru framarlega í tónlist á þessum tíma. Við vorum góðir vinir allra í Culture Club, í Spandau Ballet og Wham. Á meðan ekkert okkar tók þetta alvarlega, þá skipti þetta engu máli, við vissum öll betur. Þegar ég lít til baka núna, þá myndi ég segja að við hefðum frekar verið í samkeppni við U2 og The Police. Já, og INXS.“

Þú minntist á Wham. Hérna á Íslandi skiptust unglingar á 9. áratugnum í tvær fylkingar; annaðhvort varstu í Duran Duran hópnum eða Wham hópnum. Þetta var tekið mjög alvarlega....

„Já, því skal ég trúa,“ segir Simon hlæjandi.

Sumir skilgreina sig jafnvel ennþá á þessum forsendum, komnir á fimmtugsaldur....

„Vá!, þetta er svakalegt,“ segir Simon. „Hvorum hópnum tilheyrðir þú?“ Nú Duran Duran, auðvitað! „Yes!,“ hrópar hann upp. „Ég vissi það.“

Er í besta starfi í heimi

Simon Le Bon er eldri en tvævetur í bransanum. Hann gekk til liðs við Duran Duran árið 1980 en sveitin hafði þá verið starfandi í tvö ár og í henni, voru auk Le Bon, þeir John Taylor, Roger Taylor, Nick Rhodes og Andy Taylor. Sá síðastnefndi yfirgaf sveitina síðan árið 2006.

Er þetta ennþá jafn skemmtilegt? Að fara upp á svið, semja tónlist og taka hana upp?

„Já. Eins og ég sagði áðan; mér líkar vel að vera stjarna, ég nýt þess að vera á sviði. Mér finnst ég vera í dásamlegu starfi, besta starfi í heimi. Við, sem erum skemmtikraftar og listamenn, erum í forréttindastöðu; við fáum að standa frammi fyrir fólki og láta því líða betur, láta því líða betur með sjálft sig. Og þetta get ég – þrátt fyrir mína takmörkuðu hæfileika,“ segir Simon og fjölskyldan skellir upp úr.

Duran Duran í dag. Sveitin var stofnuð árið 1978 og …
Duran Duran í dag. Sveitin var stofnuð árið 1978 og Le Bon gekk til liðs við hana árið 1980.

Hefur það einhverntímann gerst á þessum 40 árum að þú hafir tapað gleðinni? „Ég hef aldrei tapað lífsgleðinni. En ég hætti að finna fyrir þeirri gleði, sem ég fann áður fyrir þegar ég fór inn í stúdíó að taka upp. En þetta var fyrir nokkru síðan, í kringum árið 2000. Ég missti sannarlega þessa gleði þá,“ segir Simon dapur.

En þú endurheimtir gleðina, er það ekki? spyr blaðamaður hughreystandi.

„Já, og það gerðist þegar sveitin kom saman aftur. Þá kom gleðin aftur til mín.“

Þú segir að þú og félagar þínir í Duran Duran þeir Roger Taylor, John Taylor og Nick Rhodes, séuð afar nánir vinir. Einhverjum gæti þótt það teljast til tíðinda eftir allan þennan tíma saman, þegar ýmislegt hlýtur að hafa gengið á. „Ég held að það sé fyrst og fremst vegna gagnkvæmrar virðingar. Í byrjun var heilmikil samkeppni á milli okkar, það verður að segjast eins og er. Við vorum alltaf að keppa um hitt og þetta; hver gat gert mest af þessu eða hinu. En núna, þegar við erum allir orðnir eldri og höfum fengið að vera samferða svona lengi, höfum við áttað okkur á því að enginn skilur okkur jafn vel og við í bandinu. Við höfum gengið í gegnum svo margt saman og það hefur gert okkur nánari hver öðrum.“

Það verður stuð langt fram á nótt!

Tónleikar Duran Duran hér á landi í sumar verða haldnir í Laugardalshöll þriðjudaginn 25. júní.

Spurður hverju tónleikagestir megi búast við svarar Simon stutt og laggott: „Það verður stuð langt fram á nótt!“

Hann segir að á dagskrá verði sambland af eldri og nýrri lögum. Eitthvað verði um lög af nýjustu plötu Duran Duran, Paper Gods, sem kom út árið 2015 og fékk feikifína dóma. Platan fór m.a. á topp 5 listann í Bretlandi og þar með komst sveitin í þann fámenna hóp hljómsveita sem hafa náð plötum sínum í efstu fimm sæti breska vinsældalistans fjóra áratugi í röð.

„Líklega verða um 30% laganna ný og restin verður sambland vinsælla og sígildra laga. Kannski komum við ykkur á óvart – hver veit!“

Er eitthvert lag sem þið munuð alls ekki spila?

„Já – kannastu við lagið Wake me up before you go go? Við ætlum sko ekki að spila það,“ segir Simon og hlær dátt. „Og ekki nein lög með þessari hljómsveit.“

(Þess skal getið að umrætt lag er frá árinu 1984 og er með hljómsveitinni Wham.)

Á tónleikum Duran Duran
Á tónleikum Duran Duran

Hvert er uppáhaldslagið þitt með Duran Duran? „Vá, þetta er erfið spurning. Mér finnst alltaf skemmtilegt þegar við komum fram með nýtt lag sem smellpassar með þeim eldri. Eitt þannig lag er Pressure [af plötunni Paper Gods]. Það er eitthvað sérstakt við þetta lag. Eins Notorious [frá árinu 1986], þessi lög fara einhvernveginn beint inn í sálina á mér.“

Langar til að dvelja á Íslandi

Sjáið þið félagarnir í Duran Duran fyrir ykkur að halda áfram fram á elliár? Er markmiðið að verða eins og The Rolling Stones sem hafa verið að í 60 ár eða svo? „Við höldum áfram þangað til við dettum niður; það er planið okkar. Hvað annað ætti ég svosem að gera? Hanga heima og vera konunni minni til ama?“

Í bakgrunni heyrist hrópað „Nei... ekki gera það,“ og síðan er hlegið. Simon útskýrir þetta neyðaróp og segir að það sé komið frá eiginkonu sinni, Yasmin Le Bon, sem grínist með að hún megi ekki til þess hugsa að hann verði meira heima við en þegar er. „En hún meinar þetta ekki,“ segir hann skellihlæjandi.

Þess má geta að Yasmin Le Bon er fyrrverandi fyrirsæta sem nú starfar m.a. við hönnun. Sagan segir að Simon hafi séð mynd af henni á forsíðu tímarits árið 1984 og orðið ástfanginn við fyrstu sýn. Þau giftu sig ári síðar og eiga þrjár dætur og eitt barnabarn.

Ætlið þið að dvelja eitthvað á Íslandi, annaðhvort fyrir eða eftir tónleikana?

„Kannski verðum við í nokkra daga. Ég hafði ekki tækifæri til þess síðast þegar við heimsóttum landið, en ég held að ég gæti fundið mér margt skemmtilegt að gera á Íslandi. Svo er svo fallegt þarna – ég hef verið að horfa á Ófærð í sjónvarpinu – landslagið sem maður sér í þáttunum er magnað, ég hef aldrei séð annað eins.“

Er eitthvað sem þú vilt segja við íslenska aðdáendur Duran Duran?

„Come on Iceland! Get yourself ready! Duran Duran is coming to town and it's gonna be an all night party!“

Við skulum leyfa þessum ummælum að halda sér á ensku.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Leitaðu nýrra leiða til þess að auðga líf þitt og bæta. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
3
Kolbrún Valbergsdóttir
4
Sigríður Dúa Goldsworthy
5
Arnaldur Indriðason