Atkvæði dómnefndar Hvíta-Rússlands eru ekki talin með í Eurovision eftir að í ljós kom að hún var rekin frá störfum eftir undankeppnina og var ekki starfandi þegar atkvæðin voru kynnt á laugardagskvöldið.
Atkvæði dómnefnda hafa 50% vægi á móti atkvæðum almennings í söngvakeppninni. Þetta hefur Metro eftir Eurovoix og hefur þetta fengist staðfest hjá stjórnendum keppninnar.