Jonas bjargaði lífi hennar

Joe Jonas og Sohpie Turner á Met Gala fyrr í …
Joe Jonas og Sohpie Turner á Met Gala fyrr í mánuðinum. AFP

Leikkonan Sophie Turner segir í viðtali við Sunday Times að eiginmaður hennar, Joe Jonas, hafi bjargað lífi hennar fyrst þegar þau kynntust. Þegar þau kynntust fyrst, fyrir um þremur árum, var Turner mjög illa stödd andlega að eigin sögn. 

Turner hefur nýlega stigið fram í fjölmiðlum og greint frá eigin vanlíðan síðustu ár. Hún var bæði þunglynd, kvíðin og hafði miklar ranghugmyndir um eigin líkamsímynd. Þegar hún kynntist Jonas var hún mjög þunglynd. „Hann sagði við mig „ég get ekki verið með þér fyrr en þú elskar sjálfa þig. Ég sé það ekki gerast að þú elskir mig meira en þú elskar þig sjálfa“,“ sagði Turner í viðtalinu. „Það var eitthvað við það, þegar hann sagði það. Ég held hann hafi bjargað lífi mínu með því,“ sagði Turner. 

Turner og Jonas gengu í það heilaga fyrir nokkrum vikum í Las Vegas í Bandaríkjunum en þau höfðu verið trúlofuð í um eitt og hálft fyrir það. 

Turner var aðeins 13 ára gömul þegar hún byrjaði að leika í Game of Thrones og 15 ára þegar þættirnir komu út. Hún fann þó ekki fyrir áhrifum frægðarinnar fyrr en hún var orðin 17 ára gömul. Samfélagsmiðlar gerðu illt verra og trúði hún ljótum ummælum sem höfð voru um hana á netinu. Hún leitaði sér hjálpar og í dag er hún á miklu betri stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant