Mynd Hlyns lofuð í Cannes

Aðalleikararnir Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir í Cannes.
Aðalleikararnir Ingvar E. Sigurðsson og Ída Mekkín Hlynsdóttir í Cannes. ljósmynd/Pierre Caudevelle

Nýjasta kvikmynd Hlyns Pálmasonar, Hvítur, hvítur dagur, hefur hlotið mikið lof og fengið frábæra dóma hjá stærstu erlendu kvikmyndamiðlunum í framhaldi af frumsýningu myndarinnar á Cannes-kvikmyndahátíðinni í Frakklandi sem nú er haldin í 72. sinn. 

Framleiðandi myndarinnar, Anton Máni Svansson, segir frumsýninguna hafa gengið vonum framar.

„Það var spenna í loftinu og mikið hlegið, en einnig féllu tár víðs vegar um salinn og svo var standandi lófaklapp yfir allan kreditlistann. Við höfum fengið gífurlega mikla athygli í framhaldinu og því verið fleygt fram til að mynda í kvikmyndavefritum EKKO og MUBI að myndin sé ein sú sterkasta á hátíðinni til þessa,“ segir Anton Máni. 

Blaðamaður Screen International, Wendy Mitchell, hefur einnig sagt á samfélagsmiðlum að myndin sé meðal þeirra mest umtöluðu á hátíðinni. 

Gagnrýnandi Hollywood Reporter segir að myndin sé „kröftug og frumlega úthugsuð“ og fer einnig fögrum orðum um aðalleikara myndarinnar, Ingvar Sigurðsson, en hann hefur fengið mikið lof fyrir hlutverk sitt í myndinni.

Leikstjórinn Hlynur Pálmason fyrir miðju ásamt aðalleikurunum Ídu Mekkín Hlynsdóttur …
Leikstjórinn Hlynur Pálmason fyrir miðju ásamt aðalleikurunum Ídu Mekkín Hlynsdóttur og Ingvari E. Sigurðssyni. ljósmynd/Pierre Caudevelle

„Ingimundur er heillandi og áhugaverður karakter, meistaralega dreginn upp af Ingvari Sigurðssyni,“ segir í Screen International, og enn fremur að myndin sjálf sé „sjónrænt grípandi og áhrifamikil“.

Gagnrýnandi MUBI segir myndina vera „mest taugatrekkjandi og tilfinningaríka upplifunin til þessa“ og að hann sjái fyrir sér að frammistaða Ingvars eigi eftir að sitja í honum lengi vel eftir að hátíðin nær enda.

Myndin fjallar um lögreglustjórann Ingimund sem hefur verið í starfsleyfi frá því eiginkona hans lést óvænt af slysförum. Hann einbeitir sér að því að byggja hús fyrir dóttur sína og afastelpu þar til athygli hans beinist að manni sem hann grunar að hafi átt í ástarsambandi við konu hans. Fljótlega breytist grunur Ingimundar í þráhyggju og leiðir hann til róttækra gjörða sem óhjákvæmilega bitna einnig á þeim sem standa honum næst.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd á eftir hinni dönsk/íslensku Vetrarbræður, sem kom út árið 2017 og fór sigurför um heiminn í kjölfar heimsfrumsýningar í aðalkeppni Locarno-kvikmyndahátíðarinnar í Sviss.

Hvítur, hvítur dagur verður frumsýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi 6. september.

Aðstandendur myndarinnar í Cannes.
Aðstandendur myndarinnar í Cannes. ljósmynd/Pierre Caudevelle
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant