Hætt með körfuboltastjörnunni

Kendall Jenner er sögð einhleyp.
Kendall Jenner er sögð einhleyp. mbl.is/AFP

Fyrirsætan Kendall Jenner er hætt með körfuboltakappanum Ben Simmons að því er fram kemur á vef Page Six. Jenner prýðir nýjustu forsíðu ástralska Vogue og ræðir hún meðal annars um Simmons, en viðtalið birtist á vef Vogue í Ástralíu fyrir helgi. 

Segja heimildarmenn Page Six að parið hafi hætt saman í síðustu viku. Fleiri miðlar flytja fréttir af ástamálum fyrirsætunnar en að sögn heimildamanns People er parið í pásu og sambandið búið og Jenner eyði nú tíma með vinum og einbeiti sér að því að skemmta sér. 

Jenner tjáir sig lítið um ástamál sín þótt hún hafi viðurkennt að eiga í sambandi við Simmons í umræddu viðtali við Vogue. Fyrst fréttist af sambandi þeirra fyrir meira en ári. 

„Ég er líka mjög ung og mér líður eins og sambönd séu ekki alltaf mjög áreiðanleg og ég vil ekki vekja of mikla athygli á einhverju ef ég veit ekki hvort það er til langframa,“ sagði Jenner meðal annars en svo virðist einmitt sem sambandið hafi ekki verið upp á sitt besta þegar viðtalið kom loks út. 

Ben Simmons.
Ben Simmons. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson