Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly vissi Olivia Jade, dóttir leikkonunnar Lori Loughlin og Mossimo Giannulli, að foreldrar hennar höfðu þurft að greiða háa upphæð til að koma henni inn í University of Southern California. Hún komst ekki inn í aðra háskóla í Kaliforníu-ríki þegar hún sótti um.
Leikkonan og eiginmaður hennar bíða nú eftir að dæmt verði í máli þeirra, en þau eru ákærð fyrir að hafa svindlað dætrum sínum tveim inn í háskóla. Málið er hluti af stærri rannsókn, svokölluðu háskólasvindlmáli, en þau hafa neitað sök í málinu. Loughlin og Giannulli greiddu hálfa milljón Bandaríkjadala til þess að koma systrunum inn í skólann.
Olivia Jade hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan upp komst um málið, en hún hefur unnið að því síðustu ár að byggja upp orðspor sitt á samfélagsmiðlum. Hún var í samstarfi með nokkrum snyrtivörufyrirtækjum, en hefur misst þá samninga.