Harington leitar sér hjálpar

Kit Harington hefur ákveðið að leita sér hjálpar.
Kit Harington hefur ákveðið að leita sér hjálpar. AFP

Breski leikarinn Kit Harington hefur ákveðið að fara í meðferð til að vinna í persónulegum málefnum að því er BBC greinir frá. Samkvæmt talsmönnum hans ákvað hann að nýta tímann eftir að Game of Thrones kláraðist til að vinna í sjálfum sér. Hann hefur verið undir miklu álagi síðustu misseri. 

Harington fór með hlutverk Jon Snow í þáttunum Game of Thrones, sem runnu sitt skeið nýlega. 

Í nýlegu viðtali við Variety greindi hann frá því að hann hafi fundið fyrir þreytu og álagi síðustu mánuðina í tökum. Síðustu tökudagarnir voru að hans sögn mjög hjartnæmir. 

Í nýrri heimildarmynd, The Last Watch, sem fjallar um gerð síðustu þáttaraðarinnar af Game of Thrones má sjá Harington bresta í grát þegar endalok mótleikkonu hans, Emiliu Clarke, eru lesin. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant