Leikarinn Nicolas Cage hefur gengið frá skilnaði við fyrrverandi eiginkonu sína. Cage gekk í það heilaga með förðunarfræðingnum Eriku Koike 23. mars síðastliðinn í Las Vegas og voru þau því gift í heila 69 daga.
Cage sótti um ógildingu á hjónabandinu aðeins fjórum dögum seinna og sagði hjónabandið vera byggt á lygi. Koike fór svo fram á fjárhagslegan stuðning í kjölfarið. Þau uppfylltu ekki skilyrðin fyrir ógildingu og þurftu því að skilja.
Cage og Koike höfðu verið saman frá því í apríl 2018. Cage á þrjú hjónabönd að baki. Hann var kvæntur leikkonunni Patricia Arquette á árunum 1995 til 2001. Önnur eiginkona hans var dóttir Elvis, Lisa Marie Presley, en þau voru einungis gift í tvö ár. Árið 2004 gekk hann í hjónaband með Alice Kim en þau skildu ekki fyrr en árið 2016.