O.J. segist ekki vera pabbi Khloé

O.J Simpson segist ekki vera pabbi Khloé Kardashian.
O.J Simpson segist ekki vera pabbi Khloé Kardashian. Samsett mynd

Fyrrverandi ruðningskappinn og leikarinn O.J. Simpson segir í færslu á Twitter að hann sé ekki pabbi Khloé Kardashian. Simpson var nágranni Kardashian-fjölskyldunnar á 9. og 10 áratug síðustu aldar og voru þeir Robert Kardashian bestu vinir.

Margir af aðdáendum Kardashian-fjölskyldunnar hafa haft uppi getgátur um að Khloé sé ekki dóttir Kardashian heldur dóttir Simpson, þar sem hún þykir ekki nógu lík eldri systrum sínum Kourtney og Kim.

Kim Kardashian ásamt föður sínum Robert Kardashian.
Kim Kardashian ásamt föður sínum Robert Kardashian. skjáskot/Instagram

Simpson segir í myndskeiðinu á Twitter að ekkert sé til í þeim sögusögnum og að hann hafi aldrei haldið við Kris Jenner. Hann segist vera mjög stoltur af öllum Kardashian-stelpunum, líkt og faðir þeirra Rob væri, ef hann væri enn á lífi. 

Þetta var aðeins þriðja færsla Simpson á Twitter, en hann byrjaði á samfélagsmiðlinum um helgina. 

Simpson er umdeildur en hann var sýknaður af ákæru að hafa myrt eiginkonu sína og vin hennar árið 1995. Robert Kardashian var einn af verjendum Simpson í málinu.

Simpson var svo dæmdur í 15 ára fangelsi árið 2008 fyrir mannrán og vopnað rán í Las Vegas. Hann þurfti þó aðeins að sitja inni í 9 ár en honum var sleppt úr haldi 1. október 2017.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson