„Ekki sek herra“

Cardi B kom fyrir dóm í Queens í gær.
Cardi B kom fyrir dóm í Queens í gær. AFP

Hipphopp-tónlistarkonan Cardi B neitaði sök fyrir rétti í New York í gær. Hún er ákærð fyrir að hafa átt aðild að átökum í næturklúbbi í borginni. „Ekki sek herra,“ sagði tónlistarkonan í vitnastúkunni í Queens í gær. Mikill mannfjöldi fylgdist með réttarhöldunum en Cardi B er ein þekktasta tónlistarkona Bandaríkjanna í dag.

Til átaka kom á nektarstaðnum Angels Strip Clup í Queens í ágúst en Cardi B var stödd á staðnum ásamt fylgjendum sínum. Hópurinn á að hafa kastað flöskum, stólum og vatnspípu í starfsfólk með þeim afleiðingum að starfsstúlka á Angels slasaðist á fæti.

Á Cardi B að hafa fyrirskipað árásina á tvær systur sem unnu á staðnum vegna þess að önnur þeirra hafði sofið hjá eiginmanni hennar, rapparanum Offset. Cardi B neitaði að semja um málslok sem varð til þess að hún var ákærð fyrir aðild að málinu. Meðal annars fyrir tilraun til árásar sem hafði þann tilgang að valda meiðslum. Ákæran er í 14 liðum. Af þeim er Cardi B ákærð um saknæmt athæfi í tveimur ákæruliðum.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson