Ætlar aldrei með Gyllenhaal aftur í ræktina

Jake Gyllenhaal og Tom Holland eru góðir félagar en kappsamir …
Jake Gyllenhaal og Tom Holland eru góðir félagar en kappsamir í ræktinni ef marka má þann síðarnefnda. mbl.is/AFP

Leikarinn ungi Tom Holland segist aldrei ætla í ræktina aftur með leikaranum Jake Gyllenhaal. Þetta kemur fram á vef E News. Þrátt fyrir að Holland sé töluvert yngri en Gyllenhaal segist hann ekki vera í betra formi. 

„Ég vildi ekki fara með Jake Gyllenhaal í ræktina því hann er í svo góðu formi og ég með svo mikið keppnisskap,“ segir Holland. 

Eftir upphitun var Holland búinn á því en þá vildi Gyllenhaal fara á hlaupabretti að skokka.

„Lögmál ræktarinnar eru þau að maður hleypur ekki hægar en maðurinn við hliðina,“ segir Holland og útskýrir að þeir hafi í upphafi ákveðið að hlaupa 1,5 km. En hafi síðan endað á að hlaupa 10 km á fullum hraða.  

Uppátækið varð til þess að Holland átti erfitt með gang í nokkurn tíma á eftir. Hann setur því stórt spurningarmerki við að æfa með Gyllenhaal í framtíðinni.  

ISABEL INFANTES
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant