Tónlistarmaðurinn Stevie Wonder tilkynnti á tónleikum sínum á laugardag á Summer Time Hyde Park-tónlistarhátíðinni að hann mun taka sér frí frá tónleikahaldi til að fara í nýrnaígræðslu.
Wonder hefur verið veikur síðustu mánuði og ferðast með læknateymi með sér. Hann tilkynnti einnig á tónleikunum að hann er kominn með líffæragjafa og mun hann fara í aðgerðina á næstu dögum.
Tónleikagestum virtist brugðið í fyrstu þegar Wonder tjáði sig um málið, en þegar hann sagði að hann væri kominn með líffæragjafa og að allt myndi vera í lagi brutust út fagnaðarlæti.
The moment, this evening at Hyde Park, Stevie Wonder told us why he would be taking a break from performing.... pic.twitter.com/pwfjnczGKx
— Aleem Maqbool (@AleemMaqbool) July 6, 2019