Gagnrýna mjúkan kvið Momoa

Jason Momoa sem Aquaman.
Jason Momoa sem Aquaman.

Leikarinn Jason Momoa hefur verið gagnrýndur fyrir að spóka sig um við strendur Miðjarðarhafsins með mjúkan kvið. Segja sumir að líkami hans sé núna „dad bod“ eða „pabba líkami.“

Momoa er þekktur fyrir skorinn og vöðvastæltan líkama sinn eins og til dæmis í kvikmyndinni Aquaman eða í fyrstu seríu af Game of Thrones. Hann er nú í sumarfríi ásamt eiginkonu sinni Lisu Bonet og dóttur hennar Zoe Kravitz á Ítalíu. 

Um leið og Momoa fékk gagnrýni fyrir að spranga um með mjúkan kvið tóku aðdáendur hans upp hanskann fyrir hann á samfélagsmiðlinum Twitter. Sumir bentu á að þrátt fyrir að ekki sjáist í vel mótaða kviðvöðvana þá er hann í töluvert betra formi en flestir, og langt frá því að vera feitur.

Momoa þurfti að fylgja ströngu mataræði fyrir tökur á kvikmyndini Aquaman sem kom út í desember 2018. Hann sagði nokkrum vikum eftir frumsýningu myndarinnar að hann hafi slakað á í mataræðinu eftir að tökum lauk. 

Hann má þó bara slaka tímabundið á í mataræðinu, þar sem stefnt er á að Aquaman 2 komi út árið 2022. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant