Kidman ástfangin af nýjustu viðbótinni

Nicole Kidman er nú orðin hundaeigandi.
Nicole Kidman er nú orðin hundaeigandi. mbl.is/AFP

Ekkert var til í þeim sögusögnum að Nicole Kidman og Keith Urban væru að ættleiða son. Þrátt fyrir það hefur fjölskylda þeirra stækkað en hjónin tóku nýlega að sér hvolp. Leikkonan heldur ekki vatni yfir nýjustu viðbótinni eins og kemur fram á Instagram-síðu hennar. 

„Fyrsti hvolpurinn minn... reyndar fyrsti hundurinn minn. Hef verið að bíða eftir þessu alla ævi,“ skrifaði Kidman á Instagram. Svo virðist því sem langþráður draumur Kidman hafi ræst. 

Nicole Kidman og Keith Urban eiga saman dæturnar Sunday Rose og Faith Margaret sem eru ellefu og níu ára. Mun fjölskyldan líklega hjálpast að með hundinn en ekki kemur fram hvað sá loðni heitir. 

View this post on Instagram

My first puppy... actually my first dog. Been waiting my whole life for this! 🐶

A post shared by Nicole Kidman (@nicolekidman) on Jul 10, 2019 at 2:42pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant