Modern Family-leikkonan Sarah Hyland er á leið upp að altarinu en kærasti hennar Wells Adams bað hennar á dögunum. Hyland sem er 28 ára og Adams sem er 35 ára greindu frá trúlofuninni á Instagram.
Hyland er ekki eina stjarnan í sambandinu en Adams er fyrrverandi raunveruleikaþáttakeppandi. Hann keppti um hylli JoJo Fletcher í 12. þáttaröð af Bechelorette í Bandaríkjunum auk þess sem hann kom fram í þættinum Bachelor in Paradise.
Adams fann ekki ástina sem piparsveinn í Bachelorette. Hann virðist þó hafa fundið hana þegar hann og Hyland byrjuðu að draga sig saman haustið 2017.
View this post on InstagramA post shared by Sarah Hyland (@sarahhyland) on Jul 16, 2019 at 4:03pm PDT