Camilla hertogaynja af Cornwall fagnaði 72 ára afmæli sínu í vikunni. Meðlimir konungsfjölskyldunnar fá ekki frí á afmælisdaginn sinn og því hélt Camilla upp á daginn í athvarfi fyrir asna.
Athvarfið fagnaði 50 ára afmæli á afmælisdegi Camillu og í tilefni dagsins fékk hún að gefa folaldi nafn. Camilla valdi nafnið Sweetpea eða „Sæta baun“ á folaldið og mun fá tilkynningar um helstu afrek baunarinnar í framtíðinni.
Camilla og eiginmaður hennar, Karl Bretaprins, hafa verið á ferðalagi um Suður England síðustu daga og lauk ferðalagi þeirra með lautarferð og afmælisveislu til heiðurs Camillu síðar um kvöldið.
View this post on InstagramA post shared by Clarence House (@clarencehouse) on Jul 17, 2019 at 1:53pm PDT