Lamar Odom saknar Kardashian-fjölskyldunnar

Lamar Odom og Khloe Kardashian.
Lamar Odom og Khloe Kardashian. AFP

Körfuboltamaðurinn Lamar Odom sagði í viðtali við TMZ að hann saknaði Kardashian-fjölskyldunnar og vonaðist til að endurbyggja samband sitt við fjölskylduna. 

Hann sagði enn fremur að tími hans með Khloé Kardashian hefði verið einn sá eftirminnilegasti og besti í hans lífi. Odom og Kardashian voru gift á árunum 2009-2016 en ýmislegt gekk á á meðan þau voru gift. Hann var meðal annars lagður inn á sjúkrahús vegna ofskömmtunar árið 2015 og skildu þau að borði og sæng fljótlega eftir það. 

Odom hyggist nú byggja upp feril sinn sem fyrirlesari í samstarfi við fyrirtækið MicDrop. Hann segir að það hafi hjálpað honum að vinna úr fortíð sinni og þeim mistökum sem hann telur sig hafa gert í gegnum ævina. 

Hann vonar að fyrirlestrar hans muni færa hann nær Kardashian-fjölskyldunni og hann geti endurbyggt samband þeirra. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson