Eins og vaxmynd eftir lýtaaðgerðir

Katie Price birti þessa mynd af sér á Instagram.
Katie Price birti þessa mynd af sér á Instagram. Skjáskot/Instagram

Fyrrverandi glamúrfyrirsætan Katie Price fór í lýtaaðgerðir á rassi og andliti í Tyrklandi í maí. Nú er hún búin að jafna sig og birti mynd af sér á Instagram nýmálaðri bara af því henni leið svo vel eins og hún orðaði það. Price fékk ekki bara fallegar athugasemdir heldur fannst mörgum hún líta út eins og vaxmynd. 

Price er vön allri athygli, bæði jákvæðri og neikvæðri. Það er ólíklegt að hún ætli sér að hætta að fara í lýtaaðgerðir þó svo nokkrir neikvæðir í athugasemdum hafi sagt hana líta út eins og vaxmynd. 

The Sun greinir frá því að hún hafi greint frá því í útvarpsviðtali á dögunum að hún væri hvergi nærri búin með lýtaaðgerðakvótann. Markmið hennar er að líta fullkomlega út.

Price hefur komist í kast við lögin og grínaðist hún með að það væri erfitt að taka mark á andlitsmynd af henni sem lögreglan hefur undir höndum þar sem hún er alltaf að breytast. „En það er ég, Pricey, sem er alltaf að breytast, ég er kamelljón.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant